Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fagnar 80 ára afmæli í ár en félagið var stofnað 25. október 1946. Stofnfundurinn var haldinn í Sjálfstæðishúsinu. Í aðalstjórn voru kjörin: Ingvar Gunnarsson kennari, Jón Magnússon frá Skuld, Jón Gestur Vigfússon bókari, Gunnlaugur Kristmundsson kennari og sandgræðslustjóri ríkisins og Þorvaldur Árnason skattstjóri. Í varastjórn voru kosin: Ólafur Vilhjálmsson bílstjóri, Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir og Bergsteinn Björnsson fisksali.
Flokkur: Fréttir 2026

