Þessa dagana er sex manna hópur frá Cuxhaven í heimsókn hér á landi þar á meðal Hans-Wilhelm Eitzen, formaður vinabæjarfélagsins í Cuxhaven og frú og Wolf-Rudiger Dick, heiðurskonsúll Íslands í Cuxhaven og frú Marion Dick, sem einnig á sæti í stjórn. Á dagskrá heimsóknarinnar var m.a. að gróðursetja 100 trjáplöntur í Cuxhavenlundinn við Hvaleyrarvatn. Fór gróðursetningin fram miðvikudaginn 2. október. Auk vina okkar frá Cuxhaven, stjórnarliða í vinabæjarfélaginu hér heima og framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Hafnarfjarðar heiðraði sendiherra Þýskalands, frú Clarissa Duvigneau ásamt syni hennar, samkomuna með nærveru sinni og gróðursetti einnig nokkur tré. Það var þann 29. sept. árið 1992, í tilefni 40 ára stjórnmálasambands Íslands og Þýskalands, sem fyrstu trén voru gróðursett í Cuxhavenlundinn við Hvaleyrarvatn. Það voru þáverandi bæjarstjórar/borgarstjórar vinabæjanna, þeir Albrecht Harten og Guðmundur Árni Stefánsson, sem plöntuðu fyrstu trjánum í þennan unaðsreit vinabæjanna, sem síðan hefur heldur betur tekið út vöxt og grósku með hverju árinu. Enda vel séð um lundinn fagra og séð til þess að planta nýjum trjám við hvert tækifæri.
Flokkur: Fréttir 2024