Laugardaginn 5. október ætlum við að ganga um bæinn og huga að trjágróðri í görðum bæjarbúa. Hugmyndin er að mæla stærstu tréin sem á vegi okkar verða. Einnig skoðum við hvaða tegundir garðagróðurs leynast bakvið garðveggina. Í fyrra mældum við grenitré við Brekkugötu 12 sem reyndist vera tæpir 21 m á hæð. Er það hæðsta tré bæjarins svo vitað sé. Gangan hefst við Suðurbæjarlaug kl. 10.00 og stendur í um tvo tíma. Nánari upplýsingar í síma félagsins: 555-6455 eða 894-1268.
Flokkur: Fréttir 2013