Fulltrúafundur skógræktarfélaganna fór fram í húsakynnum Íshesta laugardaginn 28. mars.
Á fjórða tug fulltrúa víðs vegar af landinu mættu á fundinn. Flutt voru fróðleg erindi og boðið upp á fyrirspurnir.
Að loknum fundinum kl. 14.30 bauð Skógræktarfélag Hafnarfjarðar þátttakendum til veislu í bækistöðvum sínum hinum megin við Kaldárselsveginn en í ár eru 80 ár frá stofnun Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Takk öll sem skipulögðuð, fluttu erindi og tóku þátt á þessum fróðlega og skemmtilega fundi.

