Á næstu dögum verða ný félagsskírteini send út til gildra félaga. 11 fyrirtæki í græna geiranum veita félögum milli 10 – 15% afslátt af plöntum og garðyrkjuvörum gegn framvísun félagsskírteinis. Þeir sem enn eiga eftir að greiða árgjald síðastliðins árs eru hvattir til að ganga frá greiðslu en kröfur voru stofnaðar í heimabanka síðastliðið haust. Með því að greiða árgjaldið styrkir þú starfsemi Skógræktarfélags Hafnarfjarðar en félagið sér um skógana í upplandi Hafnarfjarðar eins og í kringum Hvaleyrarvatn, í Gráhelluhrauni, Undirhlíðum og víðar. Nánari upplýsingar um félagið eru á heimasíðu þess skoghf.is. Aðalfundur félagsins verður að öllum líkindum haldinn í haust.
Flokkur: Fréttir 2021