Árni Þ. Þórólfsson starfsmaður félagsins og stjórnarliði fagnaði sextugsafmæli sínu þann 20. júlí síðastliðin. Árni hóf störf hjá félaginu árið 2003. Segja má að Árni sé sjálfmenntaður skógfræðingur en Árni er viðskiptafræðingur að mennt. Árni hefur víðtæka þekkingu á skóg- og trjárækt. Hann hefur sérstaklega lagt fyrir sig fræsöfnun og verkun á trjáfræi. Fyrir vikið hefur alls kyns fræi af framandi trjátegundum verið sáð í gróðrarstöð félagsins fyrir tilstilli Árna. Við hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar óskum Árna innilega til hamingju með daginn og viljum um leið þakka honum fyrir allt það góða starf sem hann hefur unnið fyrir félagið í gegnum tíðina.
Flokkur: Fréttir 2021