Aðalfundur 28. apríl 2022
Kæri félagi í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar 2022 verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34 kl. 20.00. Gengið inn frá Strandgötu. Kl. 20.00 – 20.45 Venjuleg aðalfundarstörf Kaffihlé Kl. 21. 05 – 21.40 Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf. flytur erindi sem hann nefnir: „Útivist í upplandi Hafnarfjarðar“.

