Sjálfboðaliðar gróðursetja
Laugardagsmorguninn 15. september 2018 mættu rúmlega tuttugu manns og gróðursettu í brekkurnar skammt fyrir vestan Hvaleyrarvatn þar sem áður var jarðvegstippur og öskuhaugar bæjarins. Gróðursettar voru tæplega eitt þúsund 3-4 ára birki, elri og asparplöntur. Þetta er níunda árið í röð sem Skógræktarfélagið efnir til sjálfboðaliða-gróðursetningardags. Að gróðursetningu lokinni var öllum boðið í heita…

