Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins er opin laugardaginn 21. desember 2019 frá kl. 10.00 til 18.00. Vorum að fá ferska furu í hús. Eigum grenitré með rót, þini í pottum, tröpputré, leiðisgreinar, jólavendi, hurðarkransa og fleira.
Marteinn Sindri Jónsson kemur í dag kl. 14.00 og leikur nokkur hugljúf lög.
Allir fá heitt súkkulaði og piparkökur í kaupbæti!
Síminn er: 555-6455 eða 894-1268. Netfang: skoghf@simnet.is
Við erum við Kaldárselsveg í Hafnarfirði.