Hvaleyrarvatnsvegur verður lokaður frá kl. 19.00 galmársdag, 31. desember 2019, til kl. 08.00 nýársdag, 1 janúar 2020. Þetta er gert til að vernda svæðið fyrir flugelda-skotríð með tilhreyrandi sóðaskap og skemmdum á t.d. ruslaílátum við Hvaleyrarvatn.
Skemmdarverk verða tafarlaust tilkynnt til lögreglu. Ennfremur eru gestir sem fara um svæðið beðnir að hafa samband við lögreglu verði þeir varir við eitthvað misjafnt á svæðinu.
Gleðilegt skógræktarár.
Stjórn og starfsfólk Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar ehf