Laugardagur 28. mars
Fulltrúafundur skógræktarfélaganna
Kl. 10.00 – 15.30. Fundurinn fer fram í bækistöðvum Íshesta, Sörlaskeiði 26, Hafnarfirði. Í lokin verður boðið upp á veitingar í Þöll að hætti Hólmfríðar.
Þriðjudagur 14. apríl
Aðalfundur
Kl. 20.00 – 21.30. Fundurinn verður í Apótekinu, Hafnarborg. Gengið inn frá Strandgötu. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum verður boðið upp á kaffiveitingar. Síðan verður fræðsluerindi að loknu kaffihléi.
Miðvikudagur 22. apríl
Jarðarblót
Kl. 18.00. Mæting í Þöll við Kaldárselsveg. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Ásatrúarfélagið.
Miðvikudaginn 2. júlí
Líf í lundi
Kl. 14.00 – 17.00. Fjölskyldudagur við Þöll við Kaldárselsveg. Boðið verður upp á veitingar, leiki og fleira skemmtilegt. Nánar auglýst síðar.
Laugardagur 19. september
Sjálfboðaliðadagur
Kl. 11.00 – 13.00. Við ætlum að hittast í hlíðunum á móts við Hamranesflugvöll skammt frá Hamranesi við Hvaleyrarvatnsveg. Síðan ætlum við að gróðursetja í svæðið sem brann í vor. Boðið verður upp á hressingu í Þöll að gróðursetningu lokinni. Allir velkomnir.
