Búið er að stofna kröfur í heimabanka vegna árgjalds 2026. Árgjaldið er það sama og í fyrra eða kr. 5.000,-. Félagar njóta afsláttar í flestum gróðrarstöðvum og garðyrkjumiðstöðvum landsins. T.d. fá félagsmenn 15% afslátt af öllum plöntum og jólatrjám í Þöll. Með því að borga árgjald og gerast félagi styður þú stígagerð, hreinsun, skógrækt og fleira í upplandi Hafnarfjarðar eins og í kringum Hvaleyrarvatn, í Gráhelluhrauni, Seldal og víðar. Félagsskírteinið er rafrænt. Ef þið hafið ekki virkjað rafrænt félagsskírteini sendið þá póst á rf@skog.is. Ef þið viljið gerast félagar sendið þá póst á skoghf@simnet.is. Ef þið óskið eftir því að hætta í félaginu sendið þá póst á skoghf@simnet.is.
Flokkur: Fréttir 2026



