Krabbameinsfélag Hfj. og Skógræktarfélag Hfj. bjóða til skógargöngu þriðjudagskvöldið 6. október kl. 19.30. Við hittumst í Þöll við Kaldárselsveg. Við upphaf göngunnar flytur Anna Borg Harðardóttir formaður Krabbameinsfélags Hfj. ávarp. Síðan verður gengið út í skóg undir leiðsögn Steinars Björgvinssonar hjá Skógræktarfélaginu. Gangan tekur um eina klukkustund. Að henni lokinni verður boðið upp á heitt súkkulaði og kleinur í Þöll. Takið með ykkur vasaljós eða aðra ljósgjafa þar sem skuggsýnt verður orðið. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma Skógræktarfélagsins: 555-6455 eða sendið fyrirspurnir á skoghf@simnet.is






