Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn í Apótekinu, Hafnarborg fimmtudaginn 30. mars kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum verður boðið upp á kaffiveitingar.
Að kaffihléi loknu mun Hannes Þór Hafsteinsson náttúru- og garðyrkjufræðingur flytja erindi sem hann nefnir "sígrænar plöntur á Íslandi". Þar mun hann fjalla um sígræna runna, tré og jurtir sem þrífast við íslenskar aðstæður og gleðja augað árið um kring.
Allir velkomnir. Hægt er að gerast félagi á staðnum. Árgjaldið er kr. 2.000,-. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar). Netfang: skoghf@simnet.is