Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins er opin frá kl. 10.00 – 18.00 virka daga. Helgina 19. og 20.des er einnig opið frá kl. 10.00 – 18.00. Um helgina verður öllum viðskiptavinum boðið upp á heitt súkkulaði og sjálfboðaliðar úr stjórn og fleiri aðstoða við val á jólatrjám og þess háttar. Rithöfundarnir Bryndís, Arnór og Óli Gunnar munu kynna bók sína "Leitin að tilgangi unglingsins" laugardaginn kemur 19. des kl. 14.00. Bókin fæst á staðnum og munu höfundar árita sé þess óskað. Fleira óvænt mun einnig verða um helgina.
Flokkur: Fréttir 2015