Sjálfboðaliða – gróðursetningardagurinn er á laugardaginn kemur 15. september 2018. Við byrjum kl. 10.00. Við hittumst á bílastæðinu við sparkvellina skammt fyrir vestan Hvaleyrarvatn. Við mætum með plönturnar og verkfæri og þið mætið með góða skapið og vinnugleðina. Gróðursett verður í brekkurnar við Hamranes þar sem tippurinn var áður (gömlu haugarnir). Svo býður félagið auðvitað upp á veitingar í Þöll að lokinni gróðursetningu. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455 eða 894-1268.