2. apríl.
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins fer fram fimmtudagskvöldið 2. apríl kl. 20.00 í Apótekin, Hafnarborg, Strandgötu 34, Hfj. Venjuleg aðalfundarstörf. Eftir kaffihlé verður boðið upp á fræðsluerindi.
25. apríl
Fuglaskoðun
Viðburður í tengslum við bæjarhátíðina „Bjarta daga“, laugardaginn 25. apríl kl. 11.00 – 13.00. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg.
6. júni
Handverkssýning
Viðarvinir verða með sýningu á handverki úr við laugardaginn 6. júní kl. 10.00 – 18.00 í Þöll við Kaldárselsveg.
20. júní
Líf í lundi
Fjölskylduhátíð hjá skógræktarfélögum og fleiri aðilum um land allt laugardaginn 20. júní. Nánar auglýst síðar.
3. september
Sveppafræðsla/sveppaganga
Helena Marta Stefánsdóttir náttúrufræðingur verður með fræðslu og sveppagöngu kl. 17.30 fimmtudagin 3. september. Mæting við bílastæðið við vesturenda Hvaleyrarvatns. Takið með ykkur körfur, sveppakver og vasahníf.
20. september
Sjálfboðaliðadagur
Sunnudaginn 20. september ætlum við að gróðursetja í Hamranesi milli kl. 10.00 – 12.00. Allir fá heita súpu að gróðursetningu lokinni. Mæting á móts við Hamranesflugvöll við Hvaleyrarvatnsveg.
27. október
Ljósaganga
Kvöldganga í gegnum skóginn kl. 19.30 – 21.00. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. Haldið í samstarfi við Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins í tilefni bleika mánaðarins. Hrekkjavökuþema. Boðið upp á hressingu að göngu lokinni.
Desember
Jólatrjáasala
Jólatrjáasala félagsins fer fram í Þöll helgarnar 5./6., 12./13., 19./20. desember frá kl. 10.00 – 18.00. Íslensk jólatré og skreytingar úr efniviði skógarins.